Djíses Bobby

Ómææææ

03.04.2007 13:10:59 / agnespeturs

Sorry

Sorry hvað ég hef verið löt að blogga! Ég hef bara ekki haft tíma, það er nóg að gera, ég er alltaf að vinna og svoleiðis;)

Það er allavega ekki mikið að frétta, ég hef bara verið að chilla horfa á vídjó og eitthvað svoleiðis skemmtilegt;) Sá loksins Borat, hún er algjör snilld og svo sá ég mynd af gæjanum sem leikur hann og ég trúði þessu án djóks ekki að þetta væri sami maðurinn! Hann er alveg sætur í alvörunni!! Ég horfði líka aftur á myndina John Tucker must die! Hún er algjör snilld;)

Ég er reyndar búin að vera dugleg að fara í bíó sá þarna myndina music and lyrics;) Hún er ótrúlega góð og skemmtileg! En svo sá ég ógeðslega leiðinlega mynd Norbit!! Þetta var mesta peningaeyðsla og tímaeyðsla ever! En svo fór ég á 300 hún er geggjuð, ég fékk svo mikinn eldmóð á því að horfa á þessa mynd!;)

Hei ég er að fara í bústað um helgina fer á fimmtudaginn og kem heim á laugardeginum;) þarf neflinlega að vinna á laugardeginum.. Hefði alveg viljað sleppa því en verð samt að vinna;)

Skilaboð til Þóru Bjarna! Herðu elskan ég bara fæ mig ekki til þess að fá mér myspace;) þetta er bara ekki alveg fyrir mig;) sendu mér bara sms eða hringdu ef þú vilt ná í mig;) ég er líka búin að vera dugleg að hafa samband við ykkur þannig ég held að það sé bara algjör óþarfi að ég fái mér myspace;) Sorry elskan mín:* luv'ja;)

 

Herðu ég ætla bara að kveðja;)

Bæjó ~Agnes Pineapple~:) 


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.03.2007 10:37:49 / agnespeturs

AK er kominn heim:)

Já eins og sést á titlinum þá er hann Arnar Kári minn kominn heim:*:* Ég er búin að bíða eftir þessari stundu síðan 3 janúar!:) Ég hef saknað hans óendanlega mikið og nú loksins er hann kominn heim til mín:* og nottla heim til allra, ég ætla ekki að vera eigingjörn á hann;) hehe!

Jæja þannig núna síðustu tveir dagar er ég búin að vera að chilla með AK og svoleiðis:) Síðasta helgi var ekkert brjálað skemmtileg! Ég vona að sú næsta verði betri, ætli ég verði ekki í edrúpakkanum allavega á föstudaginn en svo er ég að fara í 20 afmæli á laugardaginn;) En maður sér til, ég ætla neflinlega að fara að róa mig niður í djammi og veseni, ætla að gera það ásamt honum AK:) Þannig við verðum örugglega róleg allavega ÞARnæstu helgi:);)

Annars er ekkert meira sem ég vil segja ykkur, mér finnst nottla brjálað góðar fréttir að AK minn sé kominn heim og svoleiðis:) En ég er að vísu á fullu í Dale Carnegie núna, það er brjálað að gera í því en þetta er svo ótrúlega gaman að það er ekki venjulegt:)

En já ég er alveg ótrúlega hamingjusöm núna, þannig ef þið viljið hringja og spjalla eða eitthvað þá verð ég án efa í geggjuðu skapi:D:D

Ég ætla með þessum orðum að kveðja ykkur lömbin mín:*:*

Bæjó:D:D:D

Kveðja~Agnes Pineapple~ HAMINGJUSAMA;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

07.03.2007 11:23:58 / agnespeturs

Hæhæ

Jæja þessir síðustu dagar eru fullir tilhlökkunar ásamt þeim næstu:) Núna í dag er hann Arnar Kári minn að fara að koma heim eftir 4/5 daga:D Víí

Síðasta helgi var mjög fín:) Ég allavega skemmti mér konunglega:)  Lenti á einhverju óvæntu og óskipulögðu djammi með Þóru og Elmu sem var mjöög skemmtilegt;) Þetta kvöld var allavega slysalaust:S En á laugardagskvöldið ákváðum við Sólbjört að taka vel á því;) Við hittumst öll heima hjá Jenna og Alexöndru:) En þegar það var komið að því að fara niðrí bæ þá yfirgáfum við Sólbjört alla krakkana og fórum einar á Sólon;) Þetta var án djóks eitt af skemmtilegustu djömmum sem ég hef farið á lengi lengi:) og ég held að ég og Sólbjört séum feiki sterk djammblanda;) Takk Sóla mín fyrir kvöldið;)

En ég slasaðist samt aðeins um helgina, ég sko missteig mig:S:S Algjör klaufi, þannig núna er ég bólgin og kemst ekki í neina háhælaða skó:cry::cry:  Ég kemst ekki í stígvélin mín það er svoooo sorglegt:cry:

En jæja ég kveð í bili;)

Kveðja ~Agnes Pineapple~

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.03.2007 10:34:59 / agnespeturs

Hæhæ

Jæja núna er Urpið búið:) Þetta var mjöög skemmtileg keppni mjög vel heppnuð og allt:) Ég skemmti mér allavega konunglega;) María stóð sig ótrúlega vel hún söng æðislega, ég táraðist alveg, hún var svo falleg upp á sviðinu, ljósin voru í stíl við fötin og allt;) og förðunin mín kom mjög vel út ef ég á að segja alveg eins og er:) Jón Ingi stóð sig líka mjöög vel, kom mér án djóks á óvart hve góður hann var:) Þannig að ég segji bara til hamingju krakkar:*:* og náttúrulega til allra þáttakenda:)

En gærdagurinn var æðislegur, var með stelpunum, farðaði Maríu mína og fór svo á Urpið! Svo endaði þetta allt með bjórkvöldi á Klúbbnum og svo fór ég með Alexöndru minni og vinkonu hennar á Hverfis að hitta Jenna og systur hans:) Mjöög skemmtilegt;) Svo sleppti ég nottla ekki Hlöllanum mínum:* mmmm!

Þannig að ég vil bara segja takk fyrir frábæran dag og frábært kvöld;)

En hvert er planið fyrir helgina??:) Bara rólegheit eða eitthvað tjútt? endilega látið mig vita! Sérstaklega Bobbyngarnir mínir!:)

Bæ í bili allavega;)

Kveðja~Agnes Pineapple~ 


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.02.2007 17:37:20 / agnespeturs

Váá:)

Ég var allt í einu að átta mig á svolitlu! Það er að ég er greinilega að taka lífið doltið alvarlega þessa stundina og sko ég tek allt sem allir segja mjög alvarlega. Ég held að ég ætti að chilla aðeins á þessum alvarlegheitum og taka lífinu með ró, ég er líka bara 19 og ég á að vera að njóta lífsins en ekki að vera með endalausar áhyggjur og vesen!:) Ég er mjög ánægð með að hafa ákveðið þetta því ég ætla hér eftir að njóta lífsins og slappa af og hugsa fyrst og fremst um sjálfa mig!;)

Jæja svo er María að fara að taka þátt í söngkeppni NMK, Urpinu, núna á fimmtudaginn og ég er búin að ákveða alveg sjálf að ég ætla að farða hana:) Hún var nottla mjöög ánægð með það;);) Hún á eftir að standa sig mjöög vel ég veit það, hún nottla syngur eins og engill;) Gangi þér vel María *skirp skirp*;)

Ég á eftir að vera svoltið upptekin þessa vikuna;) þannig það verður ekkert mikið bloggað;) Það er líka brjálað að gera í Dale Carnegie og ég verð að einbeita mér svoltið mikið að því núna á næstunni:*:) þetta er æðislega gaman!

En ég ætla bara að kveðja núna í bili;) Hafiði það sem allra best í vikunni;)

Bæjó;)

Kveðja~Agnes Pineapple~:D 


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.02.2007 10:35:50 / agnespeturs

Hæ sætulínur:*:)

Hei þetta er ákveðið:D:D Ég ætla að fara í förðunarskóla á 14 vikna námskeið eftir áramót;);) ég ætla að vinna í sumar og næsta vetur og safna mér pening bæði fyrir förðunarskólann og háskóla næsta haustið 2008 þá;) Þetta verður svo geggjað gaman í alvöru talað þetta er ákkúrat eitthvað sem mig hefur alltaf langað til að gera;)
Það er allt mjöög jákvætt núna þessa stundina en eins og þið vitið öll þá er það mjög fljótt að breytast og þið vitið líka út af hverju:S:) En já ég er alveg búin að ákveða allt saman! En förðunarnámskeiðið er ekki það eina sem ég hlakka til ég er nottla að fara að útskrifast og svo er eitt annað sem ég hlakka mest til af öllu þessu er að ég fæ herbergið sem ég átti alltaf að fá þegar við fluttum í þetta hús;)
Jáhá, það er rétt bróðir minn er loksins að fara að flytja í íbúðina sína með henni Kolbrúnu auðvitað, þau eiga nottla íbúðina saman:) Þannig ég er búin að vera að bíða eftir þessu í svoltinn tíma og loksins er þetta að fara að gerast;):D Ég fæ sem sagt eiginlega sér inngang og svo er nottla sér baðherbergi og allskonar;) Ég verð að fá mér ísskáp og ristavél og allt saman:D:D Þetta verður geggjað, kaupa mér húsgögn og sollis.. Ég er meira að segja byrjuð að safna í búið sko;);)
En ég ætla að kveðja ykkur í bili;)
Bæjó
Kveðja~Agnes Pineapple~Jákvæða;):D:D:D 

» 4 hafa sagt sína skoðun

21.02.2007 09:18:16 / agnespeturs

Jámm

Jæja hvað segiði gott? Allir hressir, vetrarfríið búið:) Skólinn byrjaður aftur að nýju og þess háttar geggjað gaman!:)

Hei ég fékk svoltið ruglaða hugmynd og þið verðið að segja mér ef þið haldið að ég sé algjör kjáni. Sko málið er að ég vil eiginlega ekki fara strax í háskólanám ég neflinlega held að það sé best að fá smá frí frá skóla í ár eða svo. Ég er neflinlega ekki viss um hvað ég vil læra svona 100% ég vil fara í sálfræði en samt í sögu og líka í mannfræði eða auglýsingasálfræði! Þannig ég er alveg í ruglinu! 

En ég var þá að pæla í að vinna sem sagt g taka mér frí og fara í förðunarskóla! :D:D Finnst ykkur þetta ekki geggjuð hugmynd, því þetta er eitthvað sem mig hefur langað að læra gaman að hafa lært þetta, kannski líka að læra að gera neglur og svoleiðis. ;) Ég er alvarlega að pæla í þessu! Látiði mig vita ef ykkur finnst þetta ekki sniðugt;)

Já og eitt annað, sko vegna fjölda áskorana frá ykkur sem lesa þessa síðu þá á ég að hætta allri væmni og halda henni fyrir sjálfa mig:) ok ég get það alveg ef þetta fer fyrir brjóstið á ykkur en common þið sem þekkið mig best hljótið að gera ykkur grein fyrir því að það er hellings kaldhæðni í þessu! :)

Jæja með þessum orðum kveð ég ykkur bara!

Kveðja~Agnes Pineapple~  


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.02.2007 23:00:04 / agnespeturs

Komin heim:*

Já ég er komin heim frá Danmörku, ég vil samt innst inni vera þar ennþá en það er samt gott að koma heim:* Ég sakna hans svo mikið þó svo að ég er nýbúin að sjá hann:* Ég er svo ótrúlega hrifin af honum og ég virkilega elska hann:)

En þessi Danmerkur ferð mín var ææææði sko algjör æææðibiti:) Það var svo gaman að sjá hvernig allt er þarna og það er svo gaman að hugsa til þess að einhverntíma eftir einhvern óákveðinn tíma þegar Arnar Kári og Maggi tala um Lýðháskólann þá veit ég hvað þeir eru að tala um:D:D Sem er ótrúlega skemmtilegt:*

Mér finnst samt bara að þeir ættu að koma heim, núna helst! heyriði það strákar, komiði heim kjánar!:*:* Svona í alvöru!

En það eru bara 20 dagar í dag eftir! En mér finnst það samt alveg 20 dögum of mikið! Ég þarf svo mikið á þér að halda ástin mín:*

En æjji ég ætla ekki að drepa ykkur úr væmni:) Takk fyrir geggjaða sumarbústaðarferð þetta var geggjað gaman! Þó svo að ég hafi ekki verið lengi með ykkur að djamma, ég sofnaði kl 3 eða eitthvað;) Við verðum að gera þetta aftur;) Það væri geggjað!

 

Ég og AK minn:*

Klikkið á Ég og Ak minn og gerið view image;)

Jæja ég kveð í bili

Bæ ég elska ykkur öll:* En samt mest þig Arnar Kári:*:*

Kveðja~Agnes Pineapple~:* Ástfangna:*


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.02.2007 08:29:37 / agnespeturs

Hæææææ;)

Já hæ hvað segiði? Ég er allavegana hress:) Ég er í Danmörku:) Það er reyndar snjór og vesen hérna núna geggjað kalt og þannig.. En ég keypti mér sko 66 gráður norður húfu og vettlinga þannig mér er ekki eins kalt;)

Hvað er samt að frétta af ykkur? Hrafnhildur komin með teina:) En segiði mér fréttir! Það var mjög gott að sjá hann Arnar Kára minn, hann var svo yndislegur að sækja mig á flugvöllinn:D:D Ég neflinlega átti sko að taka ein lest og ein í flugvélinni auðvitað en svo þegar ég kom út úr fríhöfninni þá stóð ástin mín þarna:*:*:* Geggjað sætur auðvitað;)

En þessi skóli er mjög fínn og mjög fínir krakkar hérna líka:) Þannig að mér líður mjög vel hérna! Það er líka ótrúlega flott hérna, garðurinn og húsin og svoleiðis:)

En ég er að fara að taka próf í fél á webct;) Þannig ég heyri bara í ykkur seinna:*

Bæjó Kv~Agnes Pineapple~ í DK:)


» 5 hafa sagt sína skoðun

05.02.2007 23:04:17 / agnespeturs

Ég lofa þetta verður ekki væmið;)

Hei, ég er að fara út;) Ætlaði bara að láta alla vita;) Ég fer á miðvikudagsmorgunin flýg klukkan 07:15! Og tek lest fokking ein:( ég er sko geggjað hrædd, bara að láta ykkur vita.... Svo þið getið hugsað til mín, sko fallega meina ég;)
Jámmm mér kvíður pínu fyrir þessu öllu! Geggjað hrædd við að ferðast ein.
En ég ætla að gera það samt svo ég geti loksins séð ástina mína:* Jáh ekki trúiði titlinum á þessu indæla bloggi!? Að ég geti sleppt væmni, hahaha ó nei;)

Æjji ég ætlaði bara að segja bæ við ykkur í þessu bloggi;);)
Ég er að fara að fokkings djamma í Óðinsvé;) Bið að heilsa ástirnar mínar;);)

Bæjó;)
Kv~Agnes Pineapple~ Danmerkur fari;);)
Luv'ja gææs;) En samt elska ég mest hann Arnar Kára minn:*:*:*

» 5 hafa sagt sína skoðun

31.01.2007 23:08:04 / agnespeturs

Tilhlökkun:D:D

Jæja, ég er að fara út til Arnars Kára ástinnar minnar eftir viku en bráðum 6 daga:D:D Ég hlakka svo ótrúlega mikið til:*:* Ég hef aldrei verið eins spennt á ævi minni held ég bara. Sko Signý vinkona mín var að koma að utan, en hún var að hitta sinn heitt elskaða Magga T sem er með Arnari Kára úti og hún sagði að þetta hefði verið BESTA helgi EVER:D Þannig ég get ekki beðið eftir að vera þarna í heila viku:)
Það er samt svo ótrúlegt hvað maður getur saknað einnar manneskju mikið:) Ég hef aldrei saknað neins eins mikið og ég sakna Arnars Kára, hann er yndið mitt:*:*
Við höfum nú ekki verið saman lengi en ég get alveg lofað ykkur því að þetta er alveg alvarlegt samband:)

En plíís ekki hætta að lesa þetta blogg það verður ekkert mjöög væmið mikið lengur;) hehe!

En já það er mikið að gera hjá mér þessa dagana, verð að skipuleggja mig betur það er alveg á hreinu;)
Ég var í nöglum hjá einni sem er að vinna með mér áðan;) ég er mjöög ánægð með útkomuna, takk María Sif:*:* Svo fer ég í litun og plokkun á morgun hjá henni Röggu minni;) þannig ég verð ógisla sæt og fín þegar ég fer út;) Ég er nottla alltaf sæt og fín en EXTRA núna:D:D

Ég hélt að ég væri búin að fitna eitthvað núna fannst það svona einvhern veginn á mér en það er bara kjaftæði ég er allavega tveim kílóum léttari en ég hélt ég væri;) ég vigtaði mig sko fyrir jól þá var ég tveim kílóum þyngri en ég er núna;) Þetta var útskýring Agnesar fyrir tregt fólk;) hehe

En sko krakkar við verðum að fara að hittast og þá meina ég að hittast ekki eitthvað að tala um það svo gerist ekkert! ég vil ekkert kjaftæði lengur! Neglum niður dagsetningu fyrir spilakvöldinu núna!! Hvenær komist þið? svo þegar ég er búin að sjá einhverjar dagsetningar þá geri ég nýa skoðanarkönnun og þið kjósið;);)

En jæja ef  þið viljið að ég kaupi eitthvað handa ykkur í fríhöfninni þá endilega kommentið eða sendið mér sms eða einfaldlega talið við mig í skólanum;);) En ég er ekki að tala um eitthvað nammi ég nenni ekki svoleiðis rugli ég er að tala um krem eða eitthvað svoleiðis;) En ég samt kem með nammi í skólann fyrir ykkur elskurnar mínar;)

Jæja ég ætla að kveðja og fara að sofa því ég get ekki beðið eftir morgundeginum því þá eru bara 6 dagar þangað til ég sé ástina mína:*:*:*:*

Bæ í bili elskurnar mínar:*
Kveðja ~Agnes Pineapple~ Sem saknar AK síns:*:*

» 2 hafa sagt sína skoðun

24.01.2007 10:09:26 / agnespeturs

Hæææ

Hæhæ, ég vildi bara segja að ég er búin að gera nýjann tengil;) OG hann er hér við hliðin á til vinstri við ykkur og hann heitir Arnar Kári;)
En ég er búin að útskýra þetta alt í tenglinum, hann bað mig neflinlega, líklegast í djóki að gera tengil bara um sig;) Og ég stóð nottla við það;)
Svo er líka komin ný skoðunarkönnun;)

Takk elskurnar;)
Kveðja ~Agnes Pineapple~
Sakna þín AK;) Allt fyrir þig;)

» 3 hafa sagt sína skoðun

23.01.2007 16:59:59 / agnespeturs

Þriðjudagurinn 23 janúar!

Já, það er þriðjudagur í dag og þetta er alveg ágætisdagur:) Ég og Hanna fórum í sporthúsið í dag og tókum veeel á því, vorum þar í alveg þrjá kl;)

Annars er ég búin að vera eitthvað súr í dag og í gær reyndar líka, ég ætla ekki að nefna neinar ástæður hér en stelpurnar vita allt um þetta:) Þannig ég nenni ómögulega að fara að útskýra þetta;)

Það var eitthvað verið að pæla í spilakvöldi, mér líst þræl vel á það;) Spila partý og co eða trivial eða eitthvað svona spennandi spil:D Fá okkur nokkra bjóra og þess háttar.. En það fer að vísu eftir því hvenær við ætlum að hafa þetta og hvar!

Ég hef svotlar áhyggjur af þessu því ég verð líklegast ekki á landinu 7 - 15 febrúar. Þið vitið alveg hvað ég er að fara að gera, óþarfti að tyggja á þessu endalaust! Þannig ég er pínu hrædd um að missa af þessu blessaða spilakvöldi:S og ég vil alls ekki missa af því:) En ég hef ekkert mikið að segja í viðbót ekki nema bara að ég er búin að vera dugleg í hollustunni og að mæta í sporthúsið og ég ætla að fara á morgun í sporthúsið og mæta alla daga sem eftir eru af þessari viku:)

En allavega ég heyri í ykkur;);)
bæjó kv. ~Agnes Pineapple~

» 2 hafa sagt sína skoðun

19.01.2007 22:13:18 / agnespeturs

Kræst!

Herðu jæja ég ákvað bara að blogga!:) Ég sit hérna heima bara í góðum fýling, mjööög góð tilbreyting að vera hérna heima bara og taka því rólega;) Þetta er gjörsamlega nauðsynlegt að geta þetta af og til;) Enda þarf ég að hvíla mig fyrir daginn á morgun í fyrsta lagi er ég að fara að vinna og svo er stefnan tekin á djammið;);) Við ætlum að hittast stelpurnar úr BogB og djamma smá!!:) Þetta verður stuð!

Æjj ég vil þakka ykkur sem lesa þessa síðu ennþá fyrir að lesa hana ennþá;) Þvílíkt og annað eins:) Ég verð að halda henni lifandi;) Ég vil segja gleðilegt nýtt ár og allt og takk fyrir það gamla!

Hmmm hvað er búið að vera að gerast hjá mér, alveg fullt! Ég er að reyna mitt besta að haldast í hollustunni!! En það gengur ekkert mjög vel t.d. fékk ég MCdonalds í kvöldmatinn!! Ekki gott:) En kommon það er föstudagur og svona, ég ætla EKKI að fá mér kleinu á morgun í vinnunni! Sko þessar fjandans Jóa Fel kleinur eru algjört ÆÐI ég elska þær en þær eru fjandi óhollar!!:)
Ég Agnes Ólöf er Aðstoðarþjálfari í Dale Carnegie námskeiði núna þessa önn:D:D:D:D:D:D Þetta verður svo mikið ææææði, ég ætla mér að segja eitthvað um þetta námskeið og hvernig mér gengur í þessu ábyrgðafulla starfi næstu vikurnar!
Ég er orðin svo upptekin að ég þarf að halda dagbók:D Keypti mér í dag eða mamma gaf mér, takk mútta:*:*, dagbók til þess að hafa í veskinu;)
Ég ætla mér að vera mjöööög dugleg í skólanum og mæta í sporthúsið! Þannig ef einhverjum vantar sporthús félaga þá er ég ævinlega til, ég þarf einhvern til að sparka í rassinn á mér og reka mig áfram:)

Ég sakna eins ákveðins aðila ótrúlega mikið, hann heitir Arnar Kári og hann er staddur í DK núna í Lýðháskóla:) sem er ekkert mikið til að brosa yfir, látið þennan broskall ekki blekkja ykkur hann er bara upp á puntið! Mér finnst þetta bara mjöög leiðinlegt að hann skuli vera þarna meðan ég er hér!:( En hann kemur þó aftur, þetta er ekkert varanlegt! AK minn ég sakna þín:*:*

Jæja ég held að þetta blogg sé bara orðið ágætt og ég ætla samt ekki að lofa upp í ermina á mér en ég skal samt lofa að ég verð betri að blogga núna!:)

Bæjó, hafiði það gott um helgina:)
Kveðja ~Agnes Pineapple~:*:*

» 7 hafa sagt sína skoðun

06.11.2006 22:18:12 / agnespeturs

Ómægúdness;)

Jæja ég ákvað að blogga því fólk var eitthvað að fara að pirra sig á þessu bloggleysi hérna!
Það er svo langt síðan ég bloggaði þannig ég man voða lítið eftir því hvað ég hef verið að gera...:S en ég er allavega búin að djamma eitthvað og vinna eitthvað líka og vera í skólanum og læra;) Sem sagt þetta venjulega;);)

Prófin fara bráðum að byrja og ég þarf að fara að gera einvherjar 2 ritgerðir og klára 1!!:S:S ekkert smá mikið að gera í skólanum... svo er ég að klúðra sporthúsinu:S geggjað ömurlegt því þá fæ ég ekki að vera með á næstu önn en ég verð að ná þessu!! Bara harkan 6 algjörlega!!

En ég mæli eindregið með myndinni Departed þig VERÐIÐ að sjá hana það er skilda!!;);)

En allavega þá varð ég bara að koma einhverri nýrri færslu hérna inn á vegna FJÖLDA áskoranna;) hehe Kópur er ekki búinn að láta mig í friði;)

Ég kveð allavega í bili og ég vona að ég hafi meira að segja næst;) og ég LOFA að þið þurfið ekki að bíða lengur en í viku kannski;)

Kveðja Agnes~Pineapple~;);):D

» 8 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2